2-3 hæða fjölbýli + bílakjallari
Hallgerðargata 2 01.34.940.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1015
2. apríl, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja tveggja og þriggja hæða fjölbýlishús með alls 39 íbúðum og bílakjallara með 22 bílastæðum á lóð nr. 2 við Hallgerðargötu.
Stærð MHL-01: 1.078,6 ferm., 3.457,4 rúmm., B-rými 15,8 ferm.
Stærð MHL-02: 1.749,7 ferm., 5.518,3 rúmm., B-rými 47,0 ferm.
Stærð MHL-03: 530,8 ferm., 1.490,4 rúmm.
Heildarstærð: 3.359,1 ferm., 10.466,1 rúmm.
Erindi fylgir greinagerð hönnuða dags. 12. mars 2019 og útreikningur á varmatapi dags. 12. mars 2019. Einnig greinagerð aðalhönnuðar dags. 25. mars 2019 og greinagerð Mannvits um brunavarnir dags. 20. mars 2019. Uppfærð greinagerð hönnuða dags. 29. mars 2019.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 225431 → skrá.is
Hnitnúmer: 10124104