Fjölbýlishús
Hallgerðargata 10 01.34.960.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1015
2. apríl, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að reisa tveggja og þriggja hæða fjölbýlishús með alls 44 íbúðum og bílakjallara með 25 stæðum, steinsteypt og einangrað að utan, fyrir Bjarg íbúðafélag, á lóð nr. 10-16 við Hallgerðargötu.
Stærðir nr. 10-12 (MHL-01): 1.089,4 ferm., 3.533,3 rúmm.
B-rými 83,2 ferm.
Stærðir nr. 14-16 (MHL-02): 1.749,7 ferm., 5.506,3 rúmm.
B-rými 154,2 ferm.
Bílageymsla (MHL-03): 622,4 ferm., 1.664,9 rúmm.
Samtals stærðir: 3.461,5 ferm., 10.704,5 rúmm.
Erindi fylgir skýrsla Brekke & Strand Akustikk AS um hljóðvist innanhúss dagsett 11. janúar 2019 og skýrsla, Heildar varmatapsrammi, frá Ask arkitektum dags. 16. janúar 2019 og greinagerð aðalhönnuðar dags. 23. mars 2019. Uppfærð greinagerð hönnuða dags. 29.mars. 2019.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. mars 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. mars 2019.
Gjald kr. 11.200 + 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

105 Reykjavík
Landnúmer: 225436 → skrá.is
Hnitnúmer: 10124124