Viðbygging og endurnýjun
Óðinsgata 19 01.18.451.6
Síðast Synjað á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1009
19. febrúar, 2019
Synjað
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að endurnýja núverandi byggingu á lóð, MHL-01, og fjölga íbúðum úr 2 í 5 og byggja nýtt þriggja hæða íbúðarhús, MHL-02, með þremur íbúðum á lóðarmörkum lóðar nr. 19 við Óðinsgötu.
Stækkun MHL-01: 170,9 ferm., 504,3 rúmm.
Stækkun MHL-02: 214,1 ferm., 609,6 rúmm.
Erindinu fylgir útreikningur á varmatapi fyrir Mhl-01 og Mhl-02 dagsettir 29. janúar 2019 og afrit af umsögn skipulagsfulltrúa vegna fyrirspurnar um fyrirhugaðar framkvæmdir, dagsett 6. apríl 2017.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. febrúar 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. febrúar 2019.
Gjald kr. 11.200
Svar

Synjað.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 15. febrúar 2019.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102121 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024372