Nýbygging með 6 íbúðum
Nýlendugata 34 01.13.022.3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1009
19. febrúar, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja þrílyft fjölbýlishús úr krosslímdum timbureiningum með 6 íbúðum og einni vinnustofu á lóð nr. 34 við Nýlendugötu.
Stærð, A-rými: 509,2 ferm., 1.554 rúmm.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. janúar 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2019.
Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. febrúar 2019 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. febrúar 2019.
Stærð, A-rými: 509,2 ferm., 1.554 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 223070 → skrá.is
Hnitnúmer: 10114028