Viðbygging, þaksvalir og pallur
Grettisgata 27 01.17.313.6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Ásta Sól Kristjánsdóttir
Byggingarfulltrúi nr. 1011
5. mars, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingar úr timbri á steyptum sökkli við norðaustur- og suðausturhlið með þaksvölum, auk palls framan við viðbyggingu norðausturhliðar húss á lóð nr. 27 við Grettisgötu.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 17. janúar 2019, útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. febrúar 2019 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. febrúar 2019.
Stækkun: 82,1 ferm., 236,0 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101553 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011578