Skarðshlíð (áður Vellir 7. áfangi), deiliskipulagsvinna.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 401
9. ágúst, 2016
Annað
Fyrirspurn
Með vísan til bréfs Skipulagsstofnunar dags. 20. maí 2016 og deiliskipulagsgagna dags. 25. jan. 2016/19.02.2016 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi sínum þann 08.06.s.l.,að auglýsa tillögu að deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var 10. júní 2013 skv. 41.gr. skipulagslaga Breytingin nær til svæðis sem afmarkast af Ásvallabraut, Stuðlaskarði, Hraunskarði, Hádegisskarði og opnu svæði sem merkt er HVa9 á gildandi aðalskipulagsuppdrætti. Tillaga að breyttu deiliskipulagi var auglýst frá 14. júní til 2. ágúst. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breyttan deiliskipulagsuppdrátt af svæði sem afmarkast af Ásvallabraut, Stuðlaskarði, Hraunskarði, Hádegisskarði og opnu svæði sem merkt er HVa9 á gildandi aðalskipulagsuppdrætti dags. 25.01.2016/19.02.2016".