Ásvallabraut tenging Valla og Áslands, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 401
9. ágúst, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi skipulag- og byggingarráðs þann 03.05.2016 var samþykkt að vinna að gerð deiliskipulagsbreytingar að legu Ásvallabrautar samkv. tillögu C. Lagður fram deiliskipulagsuppdráttur dags. 08.08.2016 að framtíðarlegu Ásvallabrautar samkvæmt tillögu C.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirhugaða legu Ásvallarbrautar eins og uppdrættir VSB verkfræðistofunar mótt. 08.08.2016 gera ráð fyrir, jafnframt samþykkir skipulags- og byggingarráð að breytt deiliskipulag af fyrirhugaðri legu Ásvallabrautar verði auglýst í samræmi við 42. gr. laga nr. 123/2010.