Strandgata 1, Bókasafnsreitur
Strandgata 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 222
24. mars, 2009
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekið til umræðu framhald vinnu við deiliskipulag bókasafnsreits, Strandgötu 1, í samræmi við verðlaunatillögu í samkeppni um stækkun bókasafnsins. Frestað á síðasta fundi.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að skipaður verði starfshópur embættismanna af skipulags- og byggingarsviði, framkvæmdasviði, fjölskyldusviði og stjórnsýslusviði til að vinna að undirbúningi við deiliskipulag og uppbyggingu reitsins. Óskað er eftir tilnefningum frá þessum sviðum fyrir næsta fund skipulags- og byggingarráðs. Starfshópnum er ætlað að hafa samstarf við lóðarhafa að Strandgötu 9 (Súfistinn) vegna áforma um stækkun byggingar á þeirri lóð. Ennfremur er hópnum ætlað að hafa samstarf með Miðbæjarsamtökum verslunar- og þjónustuaðila.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122386 → skrá.is
Hnitnúmer: 10038616