Drekavellir 53
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 398
22. febrúar, 2012
Annað
Fyrirspurn
Húsið er skráð á byggingarstigi 2, þótt það sé í fullri notkun. Fokheldisúttekt var synjað 21.01.09. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 11.01.12 eigendum og byggingarstjóra skylt að sækja að nýju um fokheldisúttekt. Yrði ekki brugðist við því innan þriggja vikna mundi byggingarfulltrúi beita ákvæðum mannvirkjalaga um að knýja fram úrbætur. Ekki hefur verið brugðist við erindinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi mun leggja dagsektir á eigendur og byggingarstjóra skv. 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 og beina því jafnframt til Mannvirkjastofnunar að veita byggingarstjóranum áminningu skv. 57. grein sömu laga, verði ekki brugðist við erindinu innan þriggja vikna. Bent er á ábyrgð eigenda skv. 15. gr. laga um mannvirki: "Eigandi ber ábyrgð á því að við hönnun, byggingu og rekstur mannvirkis sé farið að kröfum laga þessara og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra".