Gjáhella 11, byggingarstig og notkun
Gjáhella 11
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 398
22. febrúar, 2012
Annað
Fyrirspurn
Samkvæmt fasteignaskráningu er húsið enn skráð á byggingarstigi 1 þótt það sé fullbyggt og hafi verið tekið í notkun, og að lögboðnar úttektir hafi ekki farið fram, þar á meðal fokheldisúttekt. Samkvæmt skilmálum átti húsið að skilast fokhelt 7. október 2008 og fullbúið 7. apríl 2009. Skipulags- og byggingarráð gerði 14.12.10 eigendum skylt að skrá byggingarstjóra á verkið og sækja á ný um fokheldisúttekt innan 3 vikna. Ekki hafði verið brugðist við erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi ítrekaði 12.01.12 bókun skipulags- og byggingarráðs. Yrði ekki brugðist við erindinu innan fjögurra vikna mun skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á eigendur í samræmi við heimildir í mannvirkjalögum nr. 160/2010. Ekki hefur verið brugðist við erindinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir á eigendur skv. 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 frá og með 1. apríl 2012 kr. 20.000 á dag verði ekki brugðist við erindinu innan þriggja vikna. Bent er á ábyrgð eigenda skv. 15. gr. laga um mannvirki: "Eigandi ber ábyrgð á því að við hönnun, byggingu og rekstur mannvirkis sé farið að kröfum laga þessara og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra".

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 203404 → skrá.is
Hnitnúmer: 10097608