Jarðvegstippur deiliskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1638
19. maí, 2010
Annað
Fyrirspurn
14. liður úr fundargerð SBH frá 11.maí sl. Lögð fram tillaga Formu ehf að deiliskipulagi opins svæðis til sérstakra nota við Hamranes og Vatnshlíðarhnúk dags. 23.04.2010 ásamt skilmálum og skýringaruppdráttum. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillagan verði auglýst skv. 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að deiliskipulagi opins svæðis til sérstakra nota við Hamranes og Vatnshlíðarhnúk dags. 23.04.2010 verði auglýst skv. 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Gísli Ó. Valdimarsson tók til máls.   Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum framlagða tillögu skipulags- og byggingarráðs.