Lántökur 2020
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1848
27. maí, 2020
Annað
Fyrirspurn
2.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 20.maí sl. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.
Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn: ?Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins: Bæjarstjórnar Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 1.000.000.000.- kr. til 14 ára, með lokagjalddaga 5. apríl 2034 í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggur fyrir fundinum. Lánið eru til fjármögnunar á byggingu Skarðshlíðarskóla sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Til tryggingar lánunum standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamninga við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.?
Svar

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu bæjarráðs um lántöku.