Samvinna eftir skilnað
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3537
30. janúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð fjölskylduráðs frá 17.janúar sl. 13.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 22.janúar sl. Gyða Hjartardóttir, félagsráðgjafi MA og aðjúknt við HÍ og umsjónarmaður verkefnis félags- og barnamálaráðherra um eflingu skilnaðarráðgjafar mætir á fundinn og fer yfir hugmyndir að verkefni vegna innleiðingar og eflingar á nýrri framkvæmd félagslegrar ráðgjafar sem sérstaklega snýr að skilnaðarráðgjöf sbr. 17.gr.laga um félagsþjónustu sveitafélaga. Markmið verkefnisins er að innleiða og þróa nýtt vinnulag í samstarfi við ráðherra. Fjölskylduráð þakkar Gyðu Hjartardóttur fyrir góða kynningu. Fjölskylduráð tekur jákvætt í þetta verkefni. Sviðsstjóra falið að taka saman minnisblað um það hvernig þetta verður útfært á sviðinu, hvernig verklag mun breytast og hvaða áhrif þetta hefur á vinnuálag starfsmanna. Sviðsstjóra er falið að vinna þetta áfram og ganga til samninga við ráðuneytið. Um er að ræða tilraunaverkefni sem ber yfirskriftina Samvinna eftir skilnað (SES). Fjölskylduráð þakkar fyrir að Hafnarfjörður hafi verið valinn til að taka þátt í þessu verkefni. Verkefnið felur í sér aukna þjónustu fyrir fjölskyldur. Verkefninu vísað til bæjarstjórnar til kynningar.
Lagt fram samkomulag milli Félagsmálaráðuneytis og Hafnarfjarðarkaupstaðar um innleiðingu tilraunaverkefnis um framkvæmd félagslegrar ráðgjafar sem sérstasklga snýr að skilnaðarráðgjöf sbr. 17. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs mætir til fundarins.
Svar

Bæjarráð þakkar fyrir að Hafnarfjarðarkaupstaður hafi verið valinn til þátttöku í þessu tilraunarverkefni sem ber yfirskriftina Samvinna eftir skilnað (SES). Verkefnið felur í sér aukna þjónustu fyrir fjölskyldur. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning milli félagsmálaráðuneytisins og Hafnarfjarðarkaupstaðar.