Samræmd viðbragðsáætlun til að draga úr loftmengun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1850
24. júní, 2020
Annað
Fyrirspurn
6. liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 15.júní sl. Tekið fyrir að nýju.
Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemdir við framlagða viðbragðsáætlun og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Svar

Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir.

Helga Ingólfsdóttir tekur til máls. Til andsvars kemur Friðþjófur Helgi Karlsson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi viðbragðsáætlun til að draga úr loftmengun.