Hraunhvammur 3, deiliskipulagsbreyting
Hraunhvammur 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 771
23. október, 2019
Annað
Fyrirspurn
Hákon Ingi Sveinbjörnsson sækir 2.9.2019 um deiliskipulagsbreytingu á Hraunhvammi 3. Tillaga að breyttu deiliskipulagi vegna viðbyggingar og bílskúrs. Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 18.9.2019 að grenndarkynna erindið í samræmi við 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Voru breytingarnar grenndarkynntar frá 23.9.-21.10.2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Byggingarfulltrúi samþykkir deiliskipulagið sem grenndarkynnt var. Engar athugsemdir bárust
Skipulag lóðar verður færð inn í deiliskipulagsgerð Vesturbæjar.
Heimild til uppbyggingar á lóðinni skal auglýst í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við skipulagslög. Byggingarleyfisumsókn verður afgreidd þegar fullnægjandi umsókn berst.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120997 → skrá.is
Hnitnúmer: 10033343