Hjallabraut, deiliskipulagsbreyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1839
8. janúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
5.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 17.desember sl. Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þann 13 ágúst s.l. tillögu að deiliskipulagi lágreistrar byggðar við Hjallabraut. Lögð fram á ný endurskoðuð tillaga að deiliskipulagi. Um er að ræða færslu á byggingarreitum frá áður samþykktri tillögu. Tillagan var kynnt á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 22.10. s.l.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagt deiliskipulag og að málsmeðferð verði í samræmi við 2.mgr. 41.gr. skipulagslaga. Erindinu er jafnframt vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Svar

Forseti ber upp tillögu um að fresta afgreiðslu málsins og er tillagan samþykkt samhljóða.