Hellnahraun 3. áfangi, endurskoðun deiliskipulags
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1839
8. janúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
10.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 17.desember sl. Lögð fram tillaga ARKÍS dags. 16.12.2019 að breyttu deiliskipulagi þriðja áfanga Hellnahrauns.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir sitt leyti og að málsmeðferð verði í samræmi við 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt er erindinu vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Svar

Ingi Tómasson tekur til máls.

Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.