Lántökur 2019
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1822
6. mars, 2019
Annað
Fyrirspurn
2.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 28.febrúar sl. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna Hafnarfjarðarkaupstaðar sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð 396.284.578.- krónur með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við samþykkta skilmála að lánsamningi sem liggur fyrir fundinum. Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu hjúkrunarheimilis sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna Húsnæðisskrifstofu Hafnarfjarðar sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins: Bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir hér með að Húsnæðisskrifstofa Hafnarfjarðar, kt. 570790-1029, sem er 100% í eigu Hafnarfjarðarbæjar taki lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstólsfjárhæð 495.355.723 krónur með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við samþykkta skilmála að lánasamningi sem liggur fyrir fundinum og jafnframt að veita einfalda ábyrgð vegna lántökunnar. Ábyrgð þessi er veitt sbr. heimild í 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Að auki er samþykkt að veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ábyrgðin tekur til greiðslu höfuðstóls láns þessa, uppgreiðslugjaldi ásamt vöxtum og verðbótum auk hvers kyns innheimtukostnaðar. Lánið er tekið til fjármögnunar á íbúðakaupum húsnæðisskrifstofu, sem fellur undir lánshæf verkefni, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Svar

Til máls tekur Rósa Guðbjartsdóttir.

Einnig tekur til máls Friðþjófur Helgi Karlsson. Til andsvars kemur Rósa Guðbjartsdóttir.

Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir og til andsvars kemur Rósa Guðbjartsdóttir.

Ber forseti þá upp til atkvæða fyrirliggjandi tillögu frá bæjarráði til bæjarstjórnar um lántökur og er tillagan samþykkt samhljóða.