Óseyrarbraut 16 og 20, deiliskipulagsbreyting
Óseyrarbraut 20
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 677
21. maí, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Malbikunarstöðin Hlaðbær-Colas hf. sótti um á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 23.10.2018 að sameina lóðirnar Óseyrarbraut 16 og 20. Óskað var eftir breytingu á deiliskipulagi lóðanna, sem felur í sér sameiningu lóðanna, breytingu á byggingarreit, nýtingarhlutfall verði 0,3 og að kvöð um lagnir á milli lóðanna tveggja verði felld niður. Skipulags- og byggingarráð samþykkti þá framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi. Erindið var tekið fyrir á fundi Hafnarstjórnar þann 12.12.2018, sem gerði ekki athugasemd við framkomna tillögu að deiliskipulagsbreytingu vegna Óseyrarbrautar 16-20. Bæjarstjórn samþykkti ofangreint á fundi sínum þann 06.03.2019. Tillagan að breyttu deiliskipulagi var auglýst frá 02.04.2019-13.05.2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir erindið og að því verði lokið í samræmi við 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122093 → skrá.is
Hnitnúmer: 10037630