Flatahraun, gatnamót, deiliskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 677
21. maí, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 26.02.2019 var samþykkt tillaga að breyttu deiliskipulagi gatnamóta Flatahrauns og Álfaskeiðs samkvæmt uppdrætti Eflu verkfræðistofu dags jan. 2019. Skipulags- og byggingarráð hafði samþykkt á fundi sínum þann 23.10.2018 að unnið yrði að deiliskipulagsbreytingu á þá kynntum tillögum. Skipulags- og byggingarráð samþykkti að auglýsa deiliskipulagsbreytinguna skv. 1.mgr. 43.gr skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn staðfesti framangreinda samþykkt á fundi sínum þann 06.03.2019. Tilagan var auglýst frá 02.04.2019-13.05.2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir erindið og að því verði lokið í samræmi við 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.