Sorpa bs., gas- og jarðgerðarstöð, lánveiting
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1812
3. október, 2018
Annað
Fyrirspurn
4.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 25.september sl. Lagt fram erindi frá stjórn SORPU bs., dags.12.sept.sl. þar sem óskað er eftir formlegri samþykkt sveitarstjórna vegna lántöku.
Bæjarráð samþykkir bókun stjórnar SORPU bs. dags. 12. september 2018 vegna lántöku upp á 750 milljónir hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar og leggur til við bæjarstjórn að "samþykkja lántöku SORPU bs upp á kr. 750 milljónir hjá Lánasjóð sveitarfélaga vegna bygingar gas- og jarðgerðarstöðvar, sbr. bókun stjórnar SORPU bs frá 12.september s.l. sbr. framlagðan lánasamning."
Svar

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða lántöku SORPU bs. upp á kr. 750 milljónir hjá Lánasjóð sveitarfélaga vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar, sbr. bókun stjórnar SORPU bs. frá 12.september s.l., sbr. framlagðan lánasamning.