Fornubúðir 5, skipulagsbreyting
Fornubúðir 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 725
12. janúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Þann 30 júní s.l. samþykkti skipulags- og byggingarráð erindi Batterí arkitekta dags. 23.06.2020, f.h. lóðarhafa þar sem farið er fram á breytingu á greinargerð gildandi deiliskipulags. Um er að ræða óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi og samþykkti skipulags- og byggingarráð að málsmeðferð yrði í samræmi við 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Erindinu var jafnframt vísað til staðfestingar í bæjarstjórn sem staðfesti það á fundi sínum þann 16.07.2020. Erindið var grenndarkynnt frá 06.11.2020-04.12.2020. Deiliskipulagsbreytingin sem hér er sótt um felst í breytingu á 5. setningu í gildandi greinargerð með deiliskipulaginu. Athugasemd barst. Skipulags- og byggingarráð fól skipulagsfulltrúa að svara innkominni athugasemd. Umsögn skipulagsfulltrúa lögð fram.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagsbreytinguna með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120505 → skrá.is
Hnitnúmer: 10030931