Reykjanesbraut, samgönguáætlun, ályktun
Reykjanesbraut
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1809
22. ágúst, 2018
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram ályktun bæjarstjórnar.
Svar

Forseti les upp svohljóðandi tillögu að sameiginlegri ályktun bæjarstjórnar:

"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsir yfir miklum vonbrigðum með að framkvæmdir við Reykjanesbraut séu ekki hafnar og að ekki sé gert ráð fyrir þeim í nýjustu útboðsverkefnum Vegagerðarinnar. Bæjarstjórn tekur undir fyrirspurnir bæjarstjóra Hafnarfjarðar til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra þar sem krafist er skýringa á því.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ítrekar áhyggjur af þeirri miklu bílaumferð sem í dag fer um einfalda kafla brautarinnar og tvenn gatnamót á henni, við Lækjargötu og Kapklakrika. Sá vegkafli sem enn á eftir að tvöfalda og umrædd gatnamót eru fyrir löngu orðnir miklir farartálmar og þeim fylgir síaukin slysahætta.
Mikil fjölgun ferðamanna á undanförnum árum sem fara í gegnum Leifsstöð er fordæmalaus. Sú staðreynd ásamt mikilli fjölgun íbúa á Reykjanesi og í Hafnarfirði hefur leitt til þess að umferð um Reykjanesbraut hefur margfaldast. Þetta álag á einfalda brautina í gegnum Hafnarfjörð hefur leitt til mikilla umferðartafa á þeim kafla og sífellt fleiri slysa. Er því ljóst að ekki er hægt að bíða lengur með að ráðast í tvöföldun hennar á þeim kafla.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar krefst þess að ráðherrar og alþingismenn sjái til þess að í nýrri og endurskoðaðri vegaáætlun sem lögð verður fram nú á haustþingi, verði fjármagn tryggt til að ráðast í þessar brýnu framkvæmdir á Reykjanesbrautinni í gegnum Hafnarfjörð. Skilvirkar samgöngur á svæðinu og öryggi vegfarenda er í húfi. Ljóst er að við núverandi ástand verður ekki unað lengur."

Samþykkt samhljóða.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 197313 → skrá.is
Hnitnúmer: 10121182