Hádegisskarð 12,lóðarúthlutun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1794
8. nóvember, 2017
Annað
Fyrirspurn
9.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 2.nóv. sl. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni Hádegisskarði 12 verði úthlutað til óstofnaðrar húsnæðissjálfseignarstofnunar sem Hafnarfjarðarkaupstaður hefur ákveðið að stofna til byggingar íbúða samkvæmt lögum um almennar íbúðir nr. 52/2016.
Svar

Til máls tekur Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri. Til andsvars kemur Adda María Jóhannsdóttir. Haraldur L. Haraldsson svarar andsvari.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 greiddum atkvæðum að lóðinni Hádegisskarði 12 verði úthlutað til óstofnaðrar húsnæðissjálfseignarstofnunar sem Hafnarfjarðarkaupstaður hefur ákveðið að stofna til byggingar íbúða samkvæmt lögum um almennar íbúðir nr. 52/2016.