Strætó bs, aukin þjónusta, næturakstur og fleira
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1789
30. ágúst, 2017
Annað
Fyrirspurn
Til umræðu.
Svar

1. varaforseti Margrét Gauja Magnúsdóttir tekur við fundarstjórn.

Guðlaug Kristjánsdóttir tekur til máls.

Forseti Guðlaug Kristjánsdóttir tekur við fundarstjórn.

Til máls tekur Helga Ingólfsdóttir. Til andsvars kemur Margrét Gauja Magnúsdóttir.

Forseti leggur til að bæjarstjórn samþykki eftirfarandi bókun:

"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar styður eindregið tillögur stjórnar Strætó bs. um aukna þjónustu, eins og þeim er lýst í forsendum fjárhagsáætlunar sem samþykktar voru þann 25. ágúst sl. og vísað til umfjöllunar á eigendavettvangi Strætó bs."

Er tillagan samþykkt samhljóða.