Skipalón 3, ófrágengin lóð
Skipalón 3
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1822
6. mars, 2019
Annað
Fyrirspurn
1.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 26.febr. sl. Tekin fyrir tillaga ASK arkitekta dags feb. 2019 að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar Skipalón 3. Tillagan gerir ráð fyrir að lóðinni verði skipt upp í tvær lóðir. Annarsvegar lóð fyrir íbúðarhús með 6 íbúðum og hinsvegar lóð sem verður nýtt sem opið grænt svæði.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa deiliskipulagsbreytinguna skv. 1.mgr. 43.gr skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagsbreytingin verður auk þess kynnt aðliggjandi lóðarhöfum. Jafnframt leggur ráðið til við bæjarstjórn að erindið verði auglýst skv. 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að tillaga að breyttu deiliskipulagi lóðarinar Skipalón 3 verði auglýst skv. 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 203304 → skrá.is
Hnitnúmer: 10083599