Hverfisgata 49, lóðarstækkun, lóðarleigusamningur, endurnýjun
Hverfisgata 49
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 694
28. janúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 17.12.2019 að grenndarkynna fyrirhugaða stækkun lóðar nr. 49 við Hverfisgötu í Hafnarfirði. Á fundi bæjarráðs þann 04.07.2019 var tekið jákvætt í beiðni Þorbjörns Inga Stefánssonar um lóðarstækkun, sbr. bréf hans dags. 18.06.2019. Erindinu var vísað til vinnslu hjá umhverfis- og skipulagssviði og mikilvægi þess að tryggja aðgengi bæjarbúa og gesta að vitanum var áréttað. Tillagan var grenndarkynnt frá 20.12.2019 til 17.01.2020. Athugasemdir bárust.
Svar

Skipulags- og byggingarráð óskar eftir greinargerð skipulagsfulltrúa vegna framkominna athugasemda.