Reykjanesbraut, tvöföldun, aðalskipulagsbreyting
Reykjanesbraut
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 694
28. janúar, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekin til umræðu aðalskipulagsbreyting vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar. Lögð fram greinargerð Vegagerðarinnar um Reykjanesbraut, færsla við Straumsvík, dags. janúar 2020.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að hafin verði vinna við breytingar á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar á núverandi vegstæði, frá Krýsuvíkurvegi að mörkum Sveitarfélagsins Voga í samræmi við 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt er erindinu vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Á fundi Hafnarfjarðarbæjar og Rio Tinto á Íslandi kom fram að aðilar eru sammála um mikilvægi þess að bæta umferðaröryggi á Reykjanesbraut og munu aðilar leggja sitt af mörkum til að ljúka megi tvöföldun brautarinnar frá gatnamótunum við Krýsuvík að Hvassahrauni á fyrsta tímabili samgönguáætlunar.

Samgönguráðherra og Vegagerðin hafa lagt áherslu á, í samræmi við ný gögn, að brautin verði tvöfölduð á núverandi vegstað. Til að svo megi verða þarf að gera breytingar á aðalskipulagi Hafnarfjarðar og mun bærinn vinna þær í nánu samstarfi við fyrirtækið. Við breytingar á skipulaginu þarf um leið að treysta athafnasvæði Rio Tinto, en starfsemi fyrirtækisins er mikilvæg fyrir Hafnarfjörð.


220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 197313 → skrá.is
Hnitnúmer: 10121182