Austurgata 36, breyting á deiliskipulagi
Austurgata 36
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 643
20. febrúar, 2018
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju erindi Önnu Gyðu Pétursdóttur dags. 2.6.2017 um nýtt deiliskipulag vegna Austurgötu 36. Húsið var dæmt ónýtt í apríl 2017 vegna veggjatítlu og myglu. Eigendur hyggjast reisa nýtt hús á lóðinn úr steini, stærra en fyrra hús en sem samræmist umhverfi á sem bestan hátt.
Tillagan var auglýst og grenndarkynnt frá 01.11. til 13.12. 2017. Athugasemdir bárust. Skipulags- og byggingarráð fól skipulagsfulltrúa á fundi sínum þann 09.01.2018 s.l. að gefa umsögn um þær athugasemdir sem borist hafa. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19.02.2018 sem jafnframt gerði grein fyrir fundi með umsækjendum.
Svar

Afgreiðslu frestað.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120036 → skrá.is
Hnitnúmer: 10029138