Hrauntunga, deiliskipulagsbreyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1824
3. apríl, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 26.mars sl. Lögð fram tillaga A arkitekta dags. 25.3.2019 að breyttu deiliskipulagi Hrauntungu 5 ásamt skýringargögnum. Gögn frá íbúafundum lögð fram.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagðan uppdrátt að breyttu deiliskipulagi dags. 25.3.2019 og að deiliskipulagsbreytingin verði auglýst í samræmi við 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags-og byggingarráð leggur jafnframt til við bæjarstjórn að hún staðfesti ofangreint.
Svar

Ólafur Ingi Tómasson tekur til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.