Vellir, stofnræsi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1824
3. apríl, 2019
Annað
Fyrirspurn
1.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 26.mars sl. Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 23. janúar 2018 var samþykkt að unnið yrði að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna legu stofnræsis Valla. Erindið er tekið til umræðu á ný.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða lýsingu vegna legu stofnræsis Vallahverfis dags. 28.1.2019 og að málsmeðferð verði í samræmi við 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt leggur skipulags- og byggingarráð til við bæjarstjórn að hún samþykki framangreinda skipulagslýsingu vegna breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2015.
Svar

Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi skipulagslýsingu vegna breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2015.