Leikskólar og dagforeldrar, gjaldskrá og afsláttur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1776
7. desember, 2016
Annað
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð fræðsluráðs frá 30.nóv.sl. Tillaga að nýrri gjaldskrá fyrir dagforeldra sem taki gildi 1. janúar 2017 lögð fram.
Fræðsluráð vísar fyrirliggjandi tillögu til bæjarstjórnar.
Svar

Til máls tekur bæjarfulltrúi Rósa Guðbjartsdóttir og leggur til að málinu verði að nýju vísað til fræðsluráðs.

Við fundarstjórn tekur 1. varaforseti Adda María Jóhannsdóttir.

Til máls tekur bæjarfulltrúi Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Margrét Gauja Magnúsdóttir.

Við fundarstjórn tekur forseti Guðlaug Kristjánsdóttir.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að vísa málinu að nýju til fræðsluráðs.