Kirkjuvegur 11b,byggingarleyfi
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 610
15. nóvember, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á afgreiðslufundir skipulags- og byggingarfulltrúa 2. nóvember s.l. var eftirfarandi máli vísað til skipulags- og byggingarráðs: Jónína Hjördís Gunnarsdóttir,sækir 27.10.16 um leyfi til að gera núverandi staðsetningu gestahús á baklóð að varanlegri staðsetningu. samkvæmt teikningum Þorgeirs Þorgeirssonar. dagsettar 26.09.16. Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa dags. 14.11.2016.
Svar

Skipulags- og byggingarráð synjar erindinu þar sem það samræmist ekki deiliskipulagi sbr. fyrirliggandi minnisblað skipulagsfulltrúa.