Ráðning æðstu stjórnenda skv.56.gr.sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 79.gr. Samþykkta um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1774
9. nóvember, 2016
Annað
Fyrirspurn
15.liður úr fundargerð BÆJH frá 3.nóv. sl. Lögð er fram tillaga um að bæjarráð leggi til við bæjarstjórn að Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður verði ráðin sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Störf sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og bæjarlögmanns verði sameinuð. Bæjarlögmaður taki yfir sameinuð störf og samhliða verði ráðinn lögfræðingur á stjórnsýslusviðið. Við þessa breytingu færist launadeild og tölvudeild til fjármálasviðs af stjórnsýslusviði.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og leggur til við bæjarstjórn að Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður verði ráðin sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Fulltrúi Samfylkingar greiddi atkvæði á móti tillögunni.
Fulltrúi Samfylkingar og áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna óska bókað:
Samkvæmt samþykktum Hafnarfjarðarbæjar ræður bæjarstjórn í æðstu stjórnunarstöður sveitarfélagsins, þ.e. í starf bæjarstjóra og sviðsstjóra. Það er því ekki hlutverk bæjarstjóra að gera tillögu til bæjarstjórnar um ráðningar í slík embætti eins og hér er gert. Síðustu ár hefur ríkt samstaða um það í Hafnarfirði að standa faglega að ráðningum í stöður æðstu stjórnenda og í öllum tilvikum verið skipaðir þverpólitískir starfshópar sem hafa sinnt því hlutverki að undirbúa ráðningu sviðsstjóra í samstarfi við viðurkennt ráðningarfyrirtæki. Þannig hefur verið unnið eftir faglegum forsendum og tryggt að fulls jafnræðis sé gætt við ráðningar, allir umsækjendur sitji við sama borð í ráðningarferlinu og allir fái sömu möguleika til að tryggja sér starfið. Við teljum miður að hér eigi að víkja frá því faglega ferli sem tíðkast hefur og hverfa til fyrirkomulags sem ætti að tilheyra fortíðinni í opinberri stjórnsýslu og stjórnmálum. Leggjum við til að staðan verði auglýst laus til umsóknar og ráðningarferlið verði með sama hætti og hefur vegna ráðningar sviðsstjóra síðustu ár.
Adda María Jóhannsdóttir Sverrir Garðarson
Svar

Til máls tekur bæjarfulltrúi Rósa Guðbjartsdóttir.

Til máls tekur bæjarfulltrúi Adda María Jóhannsdóttir.

Við fundarstjórn tekur 2. varaforseti Kristinn Andersen.

Til máls tekur bæjarfulltrúi Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Adda María Jóhannsdóttir. Bæjarfulltrúi Guðlaug Kristjánsdóttir svarar andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur bæjarfulltrúi Adda María Jóhannsdóttir. Bæjarfullrúi Guðlaug Kristjánsdóttir svarar andsvari öðru sinni. Bæjarfulltrúi Adda María Jóhannsdóttir gerir stutta athugasemd.

Við fundarstjórn tekur forseti Guðlaug Kristjánsdóttir.

Bæjarstjórn samþykkir að ráða Sigríði Kristinsdóttur bæjarlögmann sviðsstjóra stjórnsýslusviðs, með 7 atkvæðum, 4 greiða atkvæði á móti.

Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun: Við ítrekum bókun okkar úr bæjarráði frá 3. nóvember sl. og gagnrýnum þau vinnubrögð að víkja eigi frá því faglega ferli sem tíðkast hefur við ráðningu sviðsstjóra Hafnarfjarðarbæjar og að æðstu stjórnendastöður séu ekki auglýstar.
Adda María Jóhannsdóttir
Eva Lín Vilhjálmsdóttir
Friðþjófur Helgi Karlsson
Sverrir Garðarsson

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartar framtíðar leggja fram eftirfarandi bókun: Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar lýsa vonbrigðum með að bæjarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna skuli ekki styðja framkomna tillögu um að bæjarlögmaður verði ráðinn í sameinað starf sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og bæjarlögmanns. Bæjarlögmaður fór í gegnum faglegt og vandað ráðningarferli fyrir um ári síðan sem unnið var í samstarfi við viðurkennt ráðningarfyrirtæki og var metin hæfust umsækjanda og ráðin í kjölfarið. Við núverandi aðstæður eru sterk rök fyrir því að beita heimild í 84. gr. samþykkta bæjarins um tilfærslu í starfi án auglýsingar, eins og áður hefur verið gert, þar sem bærinn hefur innanbúðar hæfan einstakling í starfið. Kostirnir eru augljósir: Hagræðing og skilvirkni auk þess sem mjög hæfur einstaklingur fæst til starfans, sem þekkir vel til stjórnsýslu Hafnarfjarðarbæjar.
Rósa Guðbjartsdóttir,
Guðlaug Kristjánsdóttir,
Kristinn Andersen,
Borghildur Sölvey Sturludóttir,
Unnur Lára Bryde,
Ólafur Ingi Tómasson,
Helga Ingólfsdóttir.