Undirhlíðanáma, breyting á deiliskipulagi vegna Sandskeiðslínu 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1779
1. febrúar, 2017
Annað
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 24.jan.sl. Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 23. nóvember 2016 var samþykkt breyting á deiliskipulagi Undirhlíða ásamt umhverfisskýrslu sbr. 7. gr laga um umhverfismat áætlanna nr. 105/2006 og að meðferð málsins yrði lokið skv. 1. mgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdarfrestur er liðinn og bárust athugasemdir. Lögð fram umsögn um athugasemdirnar. Ívar Bragason lögmaður hjá Hafnarfjarðarbæ mætti til fundarins vegna þessa máls. Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi umsagnir við athugasemdum og skipulagið fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi Undirhlíða og að málinu verði lokið í samræmi við 1. mgr. 42. gr. laga nr. 123/2010."
Svar

Tillaga um að fresta afgreiðslu málsins til næsta bæjarstjórnarfundar, sem verður haldinn eftir tvær vikur, samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.