Gaflaraleikhúsið, samstarfssamningur, erindi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1778
18. janúar, 2017
Annað
Fyrirspurn
Samstarfssamningur lagður fram til samþykktar í bæjarstjórn.
1.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 17.nóv. sl. Á fundi menningar- og ferðamálanefndar 05.11.2016 var eftirfarandi mál tekið fyrir og afgreiðsla þess var:
1604024 - Gaflaraleikhúsið, samstarfssamningur, erindi Samningur milli Hafnarfjarðarbæjar og Gaflaraleikhússins lagður fram og samþykktur.
Menningar- og ferðamálanefnd harmar að ekki hafi náðst samkomulag um endurnýjun samstarfssamnings milli Gaflaraleikhúss og Leikfélags Hafnarfjarðar í anda fyrri samnings.
Bæjarráð staðfestir samstarfssamninginn og felur bæjarstjóra að ræða við Leikfélag Hafnarfjarðar um framhaldið.
Svar

Bæjarstjórn samþykkir með 10 samhljóða atkvæðum framlagðan samning milli Hafnarfjarðarbæjar og Gaflaraleikhússins.