Hafnarstjórn - 1456
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3387
11. september, 2014
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 8. september sl.
Svar

Lagt fram til kynningar. 18.1. 1406345 - Hafnasambandsþing 2014 Farið var yfir nýafstaðið Hafnasambandsþing, sem haldið var á Dalvíkur- og Fjallabyggð dagana 4. og 5. september. 18.2. 1409030 - Hafnarfjarðarhöfn, atvinnustarfsemi Lagt fram bréf Vélsmiðju Orms og Víglundar til formanns hafnarstjórnar Unnar Láru Bryde, dagsett 29. ágúst 2014 með yfirskriftinni Atvinnustarfsemi Vélsmiðju Orms & Víglundar. Bréfið lagt fram.
Formaður bókar að hún hafi ekki fengið bréfið í hendur fyrr en rétt fyrir fund. 18.3. 1208466 - Viðlegugjöld flotkvía, viðræður. Rætt um erindi Vélsmiðju Orms og Víglundar frá því fyrr á árinu varðandi breytingar á viðlegugjöldum flotkvía fyrirtækisins. Málinu frestað til næsta fundar.