Sumarleyfi bæjarstjórnar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1727
18. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
"Bæjarstjórn samþykkir að bæjarráð annist fullnaðarafgreiðslu allra mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar 2014 stendur frá og með 19. júní til og með 19. ágúst með vísan til 8.gr. samþykktar um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar."
Svar

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kvaddi sér hljóðs vegna fundarskapa.

Gert var stutt fundarhlé.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 10 atkvæðum, 1 bæjarfulltrúi sat hjá.

Gunnar Axel Axelsson kvaddi sér hljóðs.