Hafnarstjórn - 1451
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3377
22. maí, 2014
Annað
‹ 13
14
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 20.5. sl.
Svar

lagt fram til kynningar. 14.1. 1404299 - Minnismerki um Stjána bláa Tekin fyrir ósk Eyjólfs Sæmundssonar, dagsett 22. apríl 2014, um stuðning hafnarinnar við að reisa minnisvarða um Stjána bláa. Hafnarstjórn samþykkir vilyrði fyrir fjárveitingu allt að 2 milljonir kr. til að seisa minnisvarða um Stjána bláa, enda verði aðrar forsendur fjármögnunar uppfylltar og verkefnið samþykkt af viðeigandi aðilum. Jafnframt beinir hafnarstjórn þeim tilmælum til bæjaryfirvalda að minningarreitur um skáldið Örn Arnarson við Austurgötu verði færður í viðeigandi horf. 14.2. 1310316 - Fjárhagsáætlun, uppgjör og ársreikningur 2014 Lögð fram tillaga að viðauka I við fjárhagsáætlun hafnarinnar fyrir árið 2014. Hafnarstjórn samþykkir framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun hafnarinnar fyrir árið 2014, samanber bókun liðar 1 í fundargerð. 14.3. 1403095 - Cuxhavengata 3, fyrirspurn Tekin til umsagnar fyrirspurn Saltkaup ehf. um að fá heimild til að stækka saltgeymslu fyrirtækisins að Cuxhavengötu 3. Skipulags og byggingafulltrúi sendi hafnarstjórn erindið til umsagnar á fundi sínum 19.03.2014 Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti umbeðna stækkun byggingarreits og tilfærslu kvaðar um umferð. 14.4. 1404078 - Plastpokar Lögð fram samþykkt og greinargerð Umhverfis- og framkvæmdaráðs. 9. apríl 2014, um ákvörðun og leiðir til að minnka plastpokanotkun í Hafnarfirði. Hafnarstjórn samþykkir að koma að verkefninu. 14.5. 1402300 - Hótel- og ferðaþjónusta í Hafnarfjarðarhöfn Hafnarstjóri kynnti hugmyndir um staðsetningu hótel- og veitingaskips í Hafnarfirði. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að vinna frekar í málinu og ræði við hagsmunaaðila. 14.6. 1405303 - Lóðamál hafnarinnar, staða maí 2014 Hafnarstjóri kynnti stöðu lóðamála á hafnarsvæðinu.