Menningar- og ferðamálanefnd - 224
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3377
22. maí, 2014
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 19. maí sl.
Svar

Lagt fram til kynningar. 13.1. 1401869 - Bæjarbíó, rekstraraðili. Lagður fram samningur við Menningar- og listafjelag Hafnarfjarðar um afnot af Bæjarbíói. Nefndin fór yfir samning og lagði til nokkrar breytingar. Drög að samningi samþykkt samhljóða og menningar- og ferðamálafulltrúa falið að kynna þau fyrir MLH hið fyrsta. 13.2. 1009320 - Gaflaraleikhúsið Lagður fram samningur við Gaflaraleikhúsið til næstu 3ja ára. Nefndin samþykkir drög af samningi samhljóða og einnig fylgiskjal sem er samningur á milli Leikfélags Hafnarfjarðar og Gaflaraleikhússins um samnýtingu húsnæðis. 13.3. 11021243 - Kvikmyndasafn Íslands og Bæjarbíó. Lögð fram drög að samningi sem verið er að vinna í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Menningar- og ferðamálanefnd samþykkir drögin samhljóða fyrir sitt leyti.