Kvistavellir 15, umgengni á lóð
Kvistavellir 15
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 499
26. febrúar, 2014
Annað
Fyrirspurn
Ábending hefur borist um umgengni á lóð að Kvistavöllum 15. Þar eru 7 númerslausir bílar innan lóðar. Samkvæmt 5. mgr. 20. greinar lögreglusamþykktar Hafnarfjarðar er Framkvæmdasviði Hafnarfjarðar heimilt að fjarlægja slíkar bifreiðar.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir eiganda hússins skylt að fjarlægja umræddar númerslausar bifreiðar innan tveggja vikna. Verði það ekki gert beinir skipulags- og byggingarfulltrúi því til Framkvæmdasviðs að fjarlægja bílana á kostnað eigenda.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 204380 → skrá.is
Hnitnúmer: 10085957