Strandgata 43,byggingarstig og notkun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 535
5. nóvember, 2014
Annað
Fyrirspurn
Húsnæðið er ýmist skráð á byggingarstig 4 eða 7. Lokaúttekt hefur ekki farið fram. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 29.01.14 byggingarstjóra/eigendum skylt að sækja um lokaúttekt innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæðum 56. greinar mannvirkjalaga nr. 160/2010 til að knýja fram úrbætur. Fretur var veittur til 31.03.14, en ekkert hefur gerst í málinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi bókaði 25.06.14 að hann mundi leggja dagsektir á eigendur og byggingarstjóra í samræmi við 56. grein laga um mannvirki yrði ekki brugðist við erindinu innan 4 vikna. Enn hefur ekkert gerst í málinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra Kristján Kristjánsson og sömu upphæð á eigendur frá og með 15.01.15 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi byggingarstjóri ekki sótt um lokaúttekt fyrir þann tíma. Jafnframt er bent á ábyrgð eigenda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra skv. 15. grein sömu laga.