Fundargerðir 2014, til kynningar í bæjarstjórn.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1733
29. október, 2014
Annað
Fyrirspurn
Fundargerð fjölskylduráðs frá 22.okt. sl. a.Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 17.okt. sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 20.október sl. Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 22.okt. sl. a.Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 10.okt. sl. Fundargerð bæjarráðs frá 27.okt. sl. a. Fundargerðir hafnarstjórnar frá 7. og 21. okt. sl. b. Fundargerðir menningar- og ferðamálanefndar frá 7. og 15. okt. sl. Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 14.október sl.
Svar

Gunnar Axel Axelsson kvaddi sér hljóðs vegna 1. liðar fundargerðar fjölskylduráðs frá 22. október sl., Hjúkrunarheimili í Hafnarfirði, hagkvæmniúttekt, Guðlaug Kristjánsdóttir kom að andsvari og tók 1. varaforseti Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir við stjórn fundarins á meðan, Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari.

Guðlaug Kristjánsdóttir tók þá til máls vegna sama máls.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kvaddi sér hljóðs vegna 3. liðar fundargerðar fræðsluráðs frá 20. október sl., Skólastefna Hafnarfjarðar, einnig 6. liðar sömu fundargerðar, Áslandsskóli, húsnæðis- og lóðamál, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari.

Gunnar Axel Axelsson tók þá til máls vegna sama máls sem og fundargerðar íþrótta- og tómstundanefndar frá 17. október sl., 4.liðar, Könnun á þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og 5. liðar, Bygging og rekstur íþróttamannvirkja.

Adda María Jóhannsdóttir kvaddi sér hljóðs vegna fundargerðar fræðsluráðs frá 20. október sl., 1. liðar, Hraunvallaskóli, húsnæðismál og 6. liðar, Áslandsskóli, húsnæðis- og lóðamál, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson tók einnig til máls.

Adda María Jóhannsdóttir kvaddi sér einnig hljóðs vegna 4. liðar fundargerðar umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 22. október sl., Plastpokar, Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari, Adda María Jóhannsdóttir svaraði andsvari.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kvaddi sér einnig hljóðs vegna 4. liðar fundargerðar umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 22. október sl., Plastpokar,
Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari.

Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs.