Aðalskipulag Hafnarfjarðar, breyting á svæði við Ásbraut
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1719
19. febrúar, 2014
Annað
Fyrirspurn
2.liður úr fundargerð SBH frá 11.febr. sl. Tekin til umræðu tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar svæði norðan Ásbrautar milli Tjarnarvalla og Selhellu. Lagt er til að landnotkun verði breytt úr blandaðri notkun opinberar stofnanir og opið svæði til sérstakra nota í athafnasvæði, og tengist það þá svæðinu Selhraun norður. Skipulagslýsing var samþykkt af bæjarstjórn og hefur hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Lögð fram tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að breytingunni dags. 07.10.2013. Haldinn var kynningarfundur á skipulagstillögunni 18.11.13. Aðalskipulagsbreytingin var auglýst skv. 31, grein skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdatíma er lokið, engar athugasemdir bárust. Skipulags- og byggingarráð samþykkir aðalskipulagsbreytinguna og að málinu verði lokið skv. 32. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar svæði norðan Ásbrautar milli Tjarnarvalla og Selhellu dags 07.10.2013 og að málinu verði lokið skv. 32. grein skipulagslaga nr. 123/2010".
Svar

Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.