Krýsuvík - Seltún, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1719
19. febrúar, 2014
Annað
Fyrirspurn
8.liður úr fundargerð SBH frá 11.febr.sl. Tekin fyrir að nýju tillaga að deiliskipulagi dags. 21.10.13. Skipulags- og byggingarráð ákvað 17.12.13 að senda tillöguna til umsagnar til stjórnar Reykjanessfólkvangs og Umhverfisstofnunar. Umsagnirnar hafa borist.
Skipulags- og byggingarráð gerir tillögu að breytingu á texta þannig að heimilt verði að reisa hús allt að 500m2 og með nýtingarhlutfalli allt að 0,3. Einnig verði gerð grein fyrir stækkun rútustæða og nánari skilmálar fyrir byggingar og byggingarefni.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillagan verði auglýst með áorðnum breytingum samkvæmt 41. gr. laga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að deiliskipulagstillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. laga nr. 123/2010."
Svar

Sigríður Björk Jóndóttir tók til máls, þá Rósa Guðbjartsdóttir, síðan bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir.


Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum fyrirliggjandi tillögu með áorðnum breytingum skipulags- og byggingarráðs.