Hellisgata 12 óleyfisskúr, aðgengi, bílastæði o.fl..
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 477
11. september, 2013
Annað
Fyrirspurn
Borist hafa ábendingar um uppsetningu skúrs á lóðinni, sem samræmist ekki byggingarreglugerð, og ekki liggur fyrir samþykki meðeganda í húsi, svo sem lög um fjöleignahús kveða á um. Enn fremur hefur verið gert bílastæði á lóðinni, sem er í ósamræmi við deiliskipulag svæðisins.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir eiganda eignar 0101 skylt að fjarlægja skúrinn innan 4 vikna, eða að öðrum kosti færa hann þannig að hann samræmist byggingarreglugerð nr. 112/2012 og að fengnu samþykki meðeiganda í húsi. Ennfremur fjarlægja bílastæði eða sækja um staðsetningu þess að öðrum kosti.