Breiðvangur 18, kvörtun
Breiðvangur 18
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 477
11. september, 2013
Annað
Fyrirspurn
Íbúar við Breiðvangi 18 leggja fram kvörtun vegna starfsemi gistiheimilis í húsinu, 3.hæð til vinstri. Skipulags- og byggingarfulltrúi óskaði eftir skýringum frá íbúðareiganda, sem ekki bárust. Borist hafa vísbendingar um að íbúðinni hafi verið breytt án tilskilinna leyfa, sem er brot á lögum um mannvirki nr. 160/2010.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi ítrekar fyrirmæli um upplýsingar frá eiganda. Berist þær ekki innan 2 vikna mun skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á eiganda í samræmi við 56. grein sömu laga.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120152 → skrá.is
Hnitnúmer: 10029259