Krýsuvík, ljósmyndataka.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 472
7. ágúst, 2013
Annað
Fyrirspurn
Tomoko Daimaru óskar eftir fh. tískuhönnuðarins Issey Miyake að taka ljósmyndir í Krýsuvík. Verkið tekur 2 tíma.
Svar

Leyfið er veitt með skilyrðum um góða umgengni, eins litla röskun og unnt er og að allt verði lagað sem raskað verður. Þar sem Krýsuvíkursvæðið er innan Reykjanesfólkvangs sem er friðlýstur skv. lögum um náttúruvernd verður sérstaklega að gæta þessi að valda ekki mengun, spjöllum eða neikvæðum umhverfisáhrifum. Vakin skal athygli á að svæðið við Seltún er mjög virkt sprengigíga- og borholusvæði. Hafnarfjarðarbær ber ekki ábyrgð á neinu tjóni sem kann að hljótast vegna þessarar ljósmyndunnar.