Brekkuás 5-7, ábendingar byggingafulltrúa
Brekkuás 5
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 472
7. ágúst, 2013
Annað
Fyrirspurn
Borist hafa ábendingar frá húsfélaginu Brekkuási 5 - 7, þar sem gerðar eru athugasemdir við frágang húss og lóðar. Athugun skoðunarmanns skipulags- og byggingarsviðs staðfestir ýmsar ábendinganna. Flutt var inn í húsið áður en lokaúttekt/öryggisúttekt fór fram, sem er brot á lögum um mannvirki nr. 160/2010. Lokaúttekt fór fram 26.04.2013, en lauk ekki þar sem athugasemdir voru gerðar. Byggingarstjóra var gert skylt að bæta úr þeim og boða til endurtekinnar lokaúttektar innan 4 vikna. Ekki hefur verið brugðist við erindinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingastjóra skylt að ljúka verkinu og boða til endurtekinnar lokaúttektar innan 4 vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggignarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 207163 → skrá.is
Hnitnúmer: 10084804