Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins verkefnislýsing
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 324
11. júní, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Lagt fram erindi Hrafnkels Proppé f.h. Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu þar sem send er til samþykktar. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 29.05.2013, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir Verkefnislýsingu og fjárhagsáætlun til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir verkefnislýsingu og fjárhagsáætlun fyrir svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."